blessuð sértu sveitin mín

16.02.2008 17:28:37 / arnar-holm

já sæll

verið velkomin á nýja síðu arnarholm.blog.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 20:15:41 / arnar-holm

krumminn minn

hvað er þetta gott fólk?? má ég ekki sýna krumma væntumþykju?? því ekki? ég veit ekki betur en fólk sé að láta sér þykja vænt um alls kyns kvikindi, eins og td ketti, páfagauka, eðlur, slöngur, mýs, köngulær og önnur ógeðsleg dýr..... en að ofantöldu finnst mér þessar skepnur ekki eiga rétt á sér:)

mér finnst gaman að hrafninum. þetta er gáfaðasti fuglinn á íslandi, ef einhver veit um fugl sem er með gáfur á við hrafn eða meira má hann láta ljós sitt skína.

fyrir utan það hvað hann er fallegur og skemmtilegur ránfugl risastór og tignarlegur.

annars er ég búinn að vera hálfslappur undafarna daga, hálfveikur en samt ekki, alveg ömurlegt ég er bara búinn að vera heima að gera ekki neitt síðan ég og kolli vorum að leika okkur að fleyta sleðunum á ánni heima og ég blotnaði eitthvað aðeins en láðist að fara beint heim í hrein og þurr föt heldur skruppum við í Halldórstaði, á leiðinni þangað fann ég hvað mér var hrikalega kalt og lagðist náttla í rúmið þegar heim var komið.... 

en vá hvað það er gaman að keyra á vatni, ég hef nú ekki gert mikið af því en ég veit að það verður sko gert mikið af því í framtíðinni þetta er alveg geggjað, ótrúlegt hvað það er hægt að fljóta á þessum yndislegu vélsleðum þetta er bara eins og jet-ski:):haha:

 En svo tekur vinnan við í fyrramálið,,,,,, þá förum við austur ég og kolbeinn beint á reyðarfjörð:) mitt síðasta úthald ohh það verður fínt að skipta um umhverfi.

veit ekki hvenær ég get bloggað næst um eitthvað mjög svo gáfulegt:) það er ekkert netsamband fyrir austan.... bless í bili kæru lesendur..... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 13:38:16 / arnar-holm

yndislegt veður í eyjafjarðarsveit...... eins og alltaf......

ahhh góðann daginn, ég vaknaði óvenju snemma í morgun eða um 09:30 leit út um gluggann í herberginu mínu.

sólin er nú sennilega það sem einkennir sveitina okkar hérna:) hér er alltaf sól og blíða, sko þegar það á að vera sól og blíða.

ég fór fram í eldhús glaðhlakkalegur og smellti katlinum í gang, tannburstaði mig og þá sá ég að krummi var kominn og hann kallaði á mig því hann var sko svangur eftir erfiði næturinnar, það var jú frekar hvasst í nótt.

ég dreif mig fram í eldhús og fann myglað brauð handa honum, hann er vitlaus í myglað brauð blessaður. ég opnaði útidyrahurðina og jú þar beið hann karlgreyið og hann hefur sennilega komið með frúna með sér í þetta skiptið:) boðið krummafrúnni bara í flugtúr í góða veðrinu en jú jú það er nóg til handa öllum og ég gaf þessum skemmtilega furðufugli nóg af borða.  :)

nú eftir þessa morgungjöf þá ákvað ég að setja sleðann aðeins í gang, bara svona til að ath hvort hann sé ekki í nákvæmlega sama standi og í gær:) jú jú skíddinn klikkar ekkert sko. tók eina bunu niður að póstkassa og tilbaka, svo fór ég að setja í þvottavél sleit utan af rúminu og dúndraði því í vél, nýju fínu aeg vélina mína þar sem allt er á íslensku......:)

Fimmtudagur í dag og brynjar kemur á morgun sem er mjög gott......... hlakka til að sjá kallinn....

 en eins og er, er ég staddur á skáldsstöðum eins og alltaf þegar ég er að blogga þar sem eg er ekki með netið allavega ekki eins og er en það er allt að koma :)

bless í bili :D 


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 13:18:54 / arnar-holm

góður brandari

Eins og venjulega fór Eddi snemma í háttinn, kyssti konuna góða nótt og steinsofnaði. Seinna um nóttina vaknar hann og sér gamlan mann inn í svefnherberginu, klæddan í hvítan kufl.
"Hvað í andskotanum ertu að gera í svefnherberginu mínu ?"

segir Eddi reiður.
"Þetta er ekki svefnherbergið þitt," segir maðurinn, "þú ert kominn til
himna og ég er Lykla-Pétur."
"HVAÐ? Ertu að segja að ég sé dauður ? Ég vil ekki deyja... ég er allt
of ungur og á eftir að gera svo margt," segir Eddi.

"Ef ég er dauður þá vil ég að þú sendir mig til baka á stundinni!"
"Það er nú ekki svo einfalt," Svarar Pétur. Þú getur aðeins snúið
tilbaka sem hestur eða hæna. Eða haldið áfram að vera dauður auðvitað.

Ed di hugsaði þetta í nokkrar mínútur og komst að því að það er
örugglega ekkert auðvelt líf að vera hestur, úti að hlaupa allan daginn með einhvern á bakinu, svo af tvennu illu þá væri líklegra betra að snúa aftur sem hæna. Það væri ábyggilega letilíf.
"Ég vil snúa aftur sem hæna..." samstundis var Eddi kominn í hænsnakofa með fallegar fjaðrir og allar græjur. En almáttugur hva ð honum var illt í afturendanum. Það var eins og hann væri að springa!

Þá kemur haninn....
"Hæ þú hlýtur að vera ný hérna. Hvernig hefurðu það?
"Allt í lagi býst ég við" Svarar Eddi en mér finnst eins og rassinn á mér sé að springa!
"Þú ert bara að fara að verpa. Hefurðu aldrei verpt áður?
Nei hvernig geri ég það?
"Gaggaðu tvisvar og þrýstu svo af öllu afli" Svarar haninn.

Og Eddi gaggar tvisvar og rembist svo eins og hann eigi lífið að leysa. Skömmu síðar liggur hans fyrsta egg á gólfinu.

"Vá segir Eddi þetta er meiriháttar svo gaggar hann aftur tvisvar og byrjaði að rembast og eitt egg í viðbót liggur á gólfinu.
Þegar hann gaggar í þriðja sinn heyrir hann konuna sína öskra: "Vaknaðu
Eddi, í öllum bænum. Þú ert búin að skíta út um allt rúm” !!!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 14:01:05 / arnar-holm

vélsleðar

:haha: hrikalega er nú alltaf gaman að leika sér:)

þetta er bara geðveikt frelsi...... þetta sport er nú sennilega eitt af svo mörgu sem bindur mig og brynjar minn saman það er okkar sameiginlegi áhugi á svona leiktækjum, við erum jú á svipuðu þroskastigi held ég þegar að því kemur:) hann er nú svo yndislegur alveg eins og pabbi sinn hehe honum finnst voða gott að koma til mín í sveitina og ég var að vonast til að hann fengi kannski frí á föstudaginn í skólanum svo hann geti komið til mín á fimmtudagskvöldið, vegna þess að ég fer á sunnudaginn aftur í vinnuna austur.

hann hringdi í mig í gær þessi elska og saknaði pabba síns mikið, sennilega bara jafnmikið og ég sakna hans alltaf, en við fundum afmælisgjöf handa mömmu hans:) í sameiningu hehe ég ætla nú ekki að fara nánar út í það.......... hlakka til þegar hann kemur. EN þið eruð kannski að velta fyrir ykkur af hverju ég skrifa svona stórt núna...... jú það er ein ástæða fyrir því, það er út af henni mömmu minni, hún er orðin þetta fullorðin konan jú að detta í 49 ár blessunin og sér orðið illa þannig að ég ákvað að hafa þetta vel stórt og læsilegt svo að hún geti nú séð þetta betur, jói hennar mömmu sér nú mjög vel, hann sér það vel að hann getur séð fyrir áður en mamma verður pirruð, og það getur alveg gerst með mjög skömmum fyrirvara skal ég segja ykkur, honum leiðist nú samt ekkert sérstaklega þegar hann stríðir henni sko, það hlakkar alveg í honum blessuðum þegar hann segist vera að fara í einhver viðskipti við td mig með eitthvað bílarusl. 

 EN alltaf skal mamma reiðast hehe eða ekki kannski reiðast en svona það kurrar í henni..... en þau eru yndisleg hjón eins og sagt var í heilsubælinu hahaha:)

jæja þá er best að fara að hætta ruglinu og fara að leika sér á sleðanum bara, ætla að skreppa á sleðanum til kolla og freyju og ath hvort það sé ekki einhver heima bæó 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 12:10:37 / arnar-holm

jæja......

góðan og blessaðan daginn,

og fyrirgefiði að ég hafi ekki bloggað. ég er nefnilega búinn að vera í útlegð í nokkra daga.

 ég er kominn á reyðarfjörð aftur einmitt þangað sem ég ætlaði ekki að fara aftur8|

en viti menn áður en ég vissi af var ég kominn aftur til reyðó, það var nú gaman að sjá þessa snillinga alla aftur, neita því ekki.

en að umræðu sem ég hef mikið dálæti á, ég var að tala um daginn um KONUR, ég verð nú að segja eitt bara verð sko.......

það er rosalega gaman að fá viðbrögð við þessu og comment það er sko gaman:) en elskurnar mínar þið verðið að lesa þetta síðasta blogg mitt áður en það verður allt crazy:) ég er að tala um bæði kynin, konur og kalla :) þá er ég að tala um að annað hvort foreldrið sé heima:) hmm af hverju takið þið þetta svona til ykkar??? i wonder why:)

jæja nóg um það, en við getu öll verið sammála um það að við viljum öll börnum okkar vel og gera þessi litlu kríli að framsóknarmönnum:) (eða konum)  en eins og kristín orðaði það þá vildi hún ekki vera heima og gera ekki neitt...... en er ekki vinna að vera heima með börn???  ég held það, það er bara mikil vinna.        jú leist reyndar vel á það þegar hún sagði að hún yrði bara komin heim þegar börnin kæmu heim sem er mjög gott.....

já að máli málanna... LUMINAN fyrir þá sem ekki vita er þessi yndislegi bíll minn kominn í lag vá hvað hann er góður:)  amerískur eðalvagn sem líður um vegi landsins eins og sófasett á hjólum, en hann er til sölu held ég, ég hef reyndar ekkert að gera með 2 bíla bensinn er svo góður að hann kemur í staðinn fyrir 2:)

jæja ég ætla að segja þetta gott í bili hafiði það gott í bili.... 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 16:03:50 / arnar-holm

pizza í gær.....

góðan dag...

já það var fínn dagur í gær ég fór náttúrulega í skáldsstaði eins og flest alla aðra dag, eða við feðgar.

Brynjar varð eftir þar og ég og gunnar bróðir fórum heim að baka pizzu handa liðinu sem lukkaðist bara mjög vel eins og vanalega, en eins og gunnar segir þá bý ég til bestu pizzur í heimi og allt annað er bara eitur, :D þessi maður er náttla bara snillingur.

Vignir bróðir gisti hjá okkur Brynjari í nótt og þeir frændur voru smástund í tölvunni ekki nema svona 10 tíma eithvað þannig, jú þeir fóru reyndar aðeins út í gærkvöldi það má nú ekki taka það af þeim. ég rak þá út um 9 leytið og þeir voru sestir við skjáinn aftur um 15 mínútum síðar:haha:.

En þeir voru mjög góðir að fara að sofa og allt gekk vel eins og alltaf, ég og kolli haukur og sölvi vorum á fótum til að verða fjegur og sátum við eldhúsborðið á gilsá og ræddum heimsmálin með ískalt vatn í glasi og klaka:)

En úff er að fara að vinna á morgun, það verður erfitt sérstaklega vegna þess að maður þarf að fara að vakna á morgnana hvernig verður það?

ég vil helst ekki fara á fætur fyrir hádegi það er allt of gott að lúra...... þetta rúm sem ég keypti er bara kjaftæði, það er eitthvað í því sem segir manni að maður þurfi ekkert á fætur:)

En það verður gott að koma austur aftur og hitta alla vinnufélagana maður er nú farinn að sakna þeirra aðeins.

Smá pæling hérna hjá mér hérna endilega segiði ykkar skoðun..... EIGA KONUR AÐ VINNA ÚTI???????????????

þá er ég að tala um giftar konur sem eiga börn.

persónulega finnst mér ekki sko, það er ekki sniðugt að senda börn ein heim úr skólanum og enginn heima til að taka á móti þeim það er bara þannig,

já ok eða þá að konan vinnur en karlinn ekki annað hvort.

einhver verður að vera heima finnst mér þannig var það þegar ég var lítill og það var alltaf gott að koma heim til mömmu. :$

það virðist enginn hugsa um þessi mál finnst mér, það er eins og það sé ekkert mál þó svo að lítil börn komi ein heim fari beint í tölvuna og vafri um á netinu í kannski 3-4 tíma þangað til annað foreldrið kemur heim, ekki sniðugt.

svo eru það náttúrulega einstæðar mæður hvað eiga þær að gera??? nú ná sér í mann td....

það er kannski ekki einfalt að leysa þessi mál en samt um að gera að pæla í því. en jæja hafiði það gott það sem eftir er af deginum ég er að spá í að fara að pakka niður og leggja mig jafnvel ég fór svo snemma á fætur, eða rétt um hádegi:):P

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 15:17:50 / arnar-holm

fyrsta bloggið mitt.....

góðan dag góðir lesendur, og verið velkomnir inn á þessa skemmtilegu síðu sem ég var bara rétt í þessu að græja:S

Arnar Hólm heiti ég og er eyfirðingur af lífi og sál og bý í einni blómlegustu og bestu sveit landsins:) sem er Eyjafjarðarsveit. Hvergi í heiminum er betra að vera.

Ég bý á Gilsá 2 freyja systir og kolli á Gilsá 1 og skjöldur bróðir og kristín í nesi, svo býr pabbi og kolla líka í nágrenninu eða á skáldsstöðum þannig að það er ekki langt á milli okkar, en fyrir þá sem ekki vita erum við að tala um svona 5 km vegalengd á milli þessara staða:) sem er mjög gott.

Haukur bróðir er ekki enn kominn í þetta samfélag okkar en ég efast ekki um að það styttist í það..... ætli ég verði ekki bara að leigja honum herbergi bara...

Nú ég á einn yndislegan dreng sem hægt verður að skoða, vega og meta í framtíðinni hér á þessu bloggi en ég hyggst setja inn slatta af myndum af okkur feðgum.

Hann heitir brynjar hrafn arnarsson og er alveg yndislegur drengur í alla staði, hann er að verða 12 ára á þessu ári 18 apríl, hann er mikið hjá mér í sveitinni og þar eigum við góðar stundir saman:)

En ég ætla nú ekki að hafa þetta neitt langt núna, reyni að vera duglegur að blogga í framtíðinni:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 14:58:23 / arnar-holm

Velkomin/nn á BlogCentral

Þetta er fyrsta færslan þín á BlogCentral. Til að eyða henni eða breyta notar þú umsjónarvefinn sem þú kemst inná með því að smella á "Vefstjórn" hér í valmyndinni vinstra megin.

Inni í vefstjórninni getur þú skrifað nýjar færslur, breytt færslum eða eytt þeim.
Sama gildir um gestabók þar sem þú getur eytt færslum úr henni og haft yfirsýn yfir um leið þá sem skrifa í þína gestabók

Viljir þú hafa tengla á aðrar heimasíður getur þú auðveldlega bætt þeim við undir "Tenglar" í vefstjórninni.

Til að breyta útliti síðunnar og nota þau útlit sem eru í boði smellirðu á "Stillingar á síðu" sem finna má neðarlega í valmyndinni vinstra megin.

Viljir þú bæta við bloggurum á síðuna þína til að geta skráð sig sömuleiðis inná síðuna þína, þá ferðu í "Notendur" neðst í valmyndinni vinstra megin.

Undir aukahlutir getur þú bætt hinum ýmsu hlutum inná síðuna eins og t.d. niðurteljara, leit, dagatal og fleira.
Gangi þér vel að blogga,

Besti kveðjur, BlogCentral

» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill